Innheimta fyrir fyrirtæki og stofnanir

Settu innheimtuna í traustar hendur

Gjaldskil býður upp á heildstæðar lausnir við innheimtu krafna allt frá fruminnheimtu til löginnheimtu. Félagið sérhæfir sig sérstaklega í rafrænum lausnum í kröfustýringu og innheimtu fyrir fyrirtæki og stofnanir.

01

Umhverfisvæn

Gjaldskil léttir á kolefnisfótspori viðskiptavina sinna. Við notum rafrænar birtingar til þess að afhenda greiðendum innheimtuerindi, þar sem því verður komið við. Þessi nálgun kemur í stað þess að prenta, pakka og póstleggja allt að sex bréf, vegna hverrar og einnar bankakröfu.

02

Skilvirk

Gjaldskil getur birt greiðendum innheimtuerindi og áskoranir í rauntíma, með rafrænni afhendingu. Greiðandinn fær þá þann frest sem honum ber að fá. Það tapast enginn tími við prentun, pökkun og póstburð. Innheimtumálum viðskiptavina Gjaldskila er því sinnt hraðar en hingað til hefur þekkst.

03

Traust

Gjaldskil er eitt reynslumesta innheimtufélag landsins, sem rekur sögu sína aftur til ársins 1986. Félagið kappkostar að bjóða það allra besta og nýjasta í innheimtumálum, hugbúnaði og þjónustu við viðskiptavini. Gjaldskil er í eigu lögmannsstofanna LEX og Legalis, Arctica Eignarhaldsfélags og framkvæmdastjóra félagsins.

Þjónusta

Innheimta á öllum stigum

Við bjóðum viðskiptavinum okkar heildstæða lausn á sviði innheimtu, allt frá því að krafa er stofnuð og þar til hún er greidd.

1. stig

Fruminnheimta

Tekið er við reikningum rafrænt, beint úr fjárhagskerfum, og hægt er að stofna kröfur sjálfvirkt í banka. Kröfuhafar hafa aðgang að yfirliti um sínar kröfur í kerfi Gjaldskila og geta fylgst með framvindu þeirra þar, eða í fjárhagskerfi sínu.

Lesa meira um fruminnheimtu →
2. stig

Milliinnheimta

Við leggjum ríka áherslu á að gera samskipti milli kröfuhafa og greiðenda hnökralaus. Kröfuhafar geta óskað eftir sendingu innheimtuerinda, auk símtala til að fylgja eftir kröfum og ganga á eftir greiðslu frá greiðanda.

Lesa meira um milliinnheimtu →
3. stig

Löginnheimta

Ef milliinnheimta ber ekki árangur býðst kröfuhöfum fagleg ráðgjöf um næstu skref. Aðgerðir í löginnheimtu geta meðal annars verið stefnubirting, greiðsluáskorun og dómsmeðferð.

Lesa meira um löginnheimtu →
Svört sandströnd við Atlantshafið
Gjaldskrá

Gjaldskrá

Gjaldskrá Gjaldskila er í samræmi við reglugerð nr. 37/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar, með síðari breytingum nr. 133/2010.

Hafa samband

Hafðu samband

Hafðu samband við okkur og sérfræðingar okkar aðstoða þig við að setja upp skilvirka ferla og ná settum markmiðum.