Við erum fagleg

  • Við veljum fólk í starfið en ekki starf fyrir fólkið, þannig fer saman geta og þekking við kröfur starfsins.
  • Faglega og vel er tekið á móti nýju starfsfólki.
  • Þegar starfsmaður hættir þá samfögnum við næsta áfanga í lífi viðkomandi einstaklings.

Árangur

  • Deilum þekkingu og upplýsingum þar sem við á.
  • Hjálpum hvort öðru að ná árangri og hrósum þegar vel gengur.
  • Sá sem hjálpar öðrum að ná árangri er mikilvægasti starfsmaðurinn.
  • Tileinkum okkur markmiðasetningu.

Alltaf góð mannleg þjónusta

  • Við erum mannleg og skiljum að okkar viðskiptavinir geta verið í erfiðleikum, berum virðingu fyrir erfiðleikum annarra og gerum okkar besta til að aðstoða eins og hægt er.
  • Sýnum traust og faglegt viðmót í öllum samskiptum. Við gætum alltaf þagmælsku og viðhöldum trúnaði.

Samskiptasamningur

  • Við gerum með okkur samning um samskipti. Við lofum að samskipti starfsmanna við hvert annað og við okkar viðskiptavini séu byggð á kurteisi og virðingu.
  • Jafnvægi milli vinnu og einkalífs er mikilvægt. Það er heimur fyrir utan vinnustaðinn og ef ekki er tekið tillit til hans mun starfsmaðurinn ekki blómstra í starfi.
  • Verum heilbrigð og hreyfum okkur, við hvetjum til þess í verki.
  • Einelti, kynferðisleg áreitni og óæskileg samskipti á samfélagsmiðlum eru ekki liðin.

Þróun

  • Tökum ábyrgð og klárum verkefnið þó við í fyrstu skiljum það ekki. Það að leysa verkefni sem í byrjun var óskiljanlegt er hluti af þróuninni.
  • Leitum að tækifærum til að bæta við okkur þekkingu og þannig geta tekið við aukinni ábyrgð.
  • Höldum áfram að læra og þróast.

Forysta

  • Stjórnendur deila upplýsingum og þekkingu með starfsmönnum.
  • Stjórnendur eru með skýra framtíðarsýn.
  • Höldum áfram að læra og þróast.

Jafnrétti

  • Það skiptir ekki máli hvaða kyn, litarhátt eða þjóðerni um ræðir, við erum öll jöfn sem einstaklingar og eigum jafna virðingu skilið.