Félagið starfar með innheimtuleyfi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Innheimta skiptist í þrjú stig: fruminnheimtu, milliinnheimtu og löginnheimtu. Krafa færist á milli stiga eftir því sem á líður, og kröfuhafi ræður ferðinni á hverju stigi.

Markmið okkar er að tryggja öruggara sjóðstreymi fyrir kröfuhafa, en umfram allt að tryggja góð samskipti milli kröfuhafa og greiðenda.

Þrjú stig innheimtu

Hvað er innheimta?

Innheimta er ferlið við að fylgja eftir ógreiddri kröfu og tryggja að hún fáist greidd. Innheimta í atvinnuskyni er leyfisskyld starfsemi og lýtur eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.

Innheimtukostnaður tekur mið af reglugerð nr. 37/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar, með síðari breytingum nr. 133/2010.

Fyrir hverja er innheimtuþjónustan?

Þjónustan hentar fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum sem vilja einfalda utanumhald krafna og tryggja öruggara sjóðstreymi. Umfang skiptir ekki máli — ferlið er það sama hvort sem kröfurnar eru fáar eða margar.

Kröfuhafar hafa aðgang að yfirliti um sínar kröfur í kerfi Gjaldskila og geta fylgst með framvindu þeirra þar, eða í eigin fjárhagskerfi.

Algengar spurningar

Hvað kostar innheimta?

Gjaldskrá Gjaldskila er í samræmi við reglugerð nr. 37/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar, með síðari breytingum nr. 133/2010. Sjá gjaldskrá.

Þarf að skipta um fjárhagskerfi?

Nei. Reikningar berast rafrænt beint úr því kerfi sem fyrir er.

Hvernig hef ég samband?

Hafðu samband við okkur og við förum yfir þau úrræði sem standa til boða.

Hafðu samband

Við förum yfir þau úrræði sem standa til boða og finnum lausn sem hentar.